Ég er ennþá veik og nákvæmlega á þessari stundu er messan að hefjast sem ég átti að syngja í Sendi kórstjóranum tölvupóst í gær, fattaði að ég hef ekki símanúmer hjá neinum þarna, en hann hefur ekki svarað... fékk hann ekki örugglega póstinn... Nú lætur mín mikla samviska segja til sín og sé ég kórinn fyrir mér vera að blóta þessum nýja Íslending sem skrópar í messu og sé búið að ákveða að ég verði rekin á næstu æfingu
En letilufsan hefur reddað deginum þar sem ég er víst 94% hamingjusöm....er þá nokkuð annað sem skiptir máli??? http://www.blogthings.com/howperfectisyourlifequiz/
Athugasemdir
Farðu vel með þig Adda mín - vona að þér batni fljótt!
Knús*
Soffía (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 21:36
Ég mælist 69% hamingjusöm. Láttu þér batna. kv. Anna
Anna Sigríður Hjaltadóttir (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 13:32
Velkomin heim aftur. Gott að allt gekk vel. Láttu þer batna fljótt og vel.
Knús til allra.
alvilda Þóra (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.