20 gráður á celcius:-)

...reyndar ekki úti, heldur inni í St. Nicolaas þar sem ég var að æfa mig í morgun. Þetta hafðist sem sagt loksins, í gærkvöld fékk ég lykla að kirkjunni og þvílíkur munur að vera ekki hríðskjálfandi og loppin á höndunum við að spila...tóm hamingja sem sagt. Þó er sjálfsagt vissara að vera búin að æfa vel fyrir næstu kóræfingu þar sem stjórnandinn var ekki mjög sáttur við kórinn í gær og allt gekk á afturlöppunum. Þetta týpíska tímabil að hefjast, þ.e síðustu æfingar fyrir tónleika þar sem ekkert gengur upp en svo smellur þetta nú venjulega allt þegar á hólminn er komið sem í þessu tilfelli verður 11. nóvember.
Við Alvildu skutluðumst upp á Kinkerstraat í gær og versluðum með nýja, fína debetkortinu mínu 10 jólagjafir á ca. 30 mínútum...hhmmmm kannski hljómar þetta ekkert vel... Þar með eru jólagjafainnkaup að verða hálfnuð og bara 2. nóvember, nokkuð gott ekki satt?
Annars allt í góðu hér, Elmar í skólanum og gengur vel, Alvilda syngur "Nínu" daginn út og inn og fílar sig sérstaklega vel í kaflanum: "er ég vakna, óóóó, nína þú ert ekki lengur hér...". Held við mæðgur drífum okkur nú í búðina að versla inn fyrir helgina en D og K koma í kvöld og þarf því að endurnýja birgðir hótelsins af matar og drykkjarvörum ýmsum.

Góða helgi og bestu kveðjur frá okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahaha Alvilda snillingur !.. Hún fær þá kannski einhverntíman að keyra vestur með ömmu Rakel, Míu frænku og Rakel Ingu.. Þá er sko hækkað í botn og gargað Nínu alla leiðina ;)....

Emilia (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 18:12

2 identicon

Góða skemmtun um helgina!  Bið að heilsa helgargestunum og að sjálfsögðu hinum hótelhöldurunum líka, Elmari og Alvildu 

Soffía (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 00:26

3 identicon

Sko þig  Alvilda, amma getur sko alveg sungið Nínu með þér, kann hana alveg aftur á baka og áfram:-)

amma Rakel (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 09:34

4 identicon

Ae hvad thad er gaman ad heyra hvad thad er mikid lif hja ykkur...  Og til hamingju med debetkort og korstjornun!!! Hlakka til ad fa ad heyra skemmtisögur af D+K og ykkur um sidustu helgi...

Kossar ***

Kristbjörg (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 17:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband